Fótbolti

Messi fær þrjá milljarða á ári í nýjum samningi við Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Vísir/Getty
Lionel Messi hefur samþykkt að gera nýjan fimm ára samning við Barcelona og eytt um leið öllum vangaveltum að hann sé hugsanlega á förum frá liðinu. Barcelona sendi frá sér tilkynningu í dag að nýr samningur yrði undirritaður á næstu dögum.

Messi, sem er aðeins 26 ára gamall, gerði nýjan samning við Barcelona í fyrra og náði sá til ársins 2018. Argentínski snillingurinn hefur nú fengið ríflega launahækkun fyrir annan fimm ára samning.

Spænskir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að Messi verði nú hæst launaðasti knattspyrnumaður heims en bæði Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo voru komnir með hærri laun.

Messi fékk áður 12,08 milljónir punda í árslaun (2,3 milljarðar íslenskra króna) en hækkar nú upp í 16,3 milljónir punda og er því kominn með yfir þrjá milljarða íslenskra króna í árslaun.

Messi er þar með að fá 256 milljónir á mánuði allt árið eða 8,4 milljónir á dag allt árið um kring.

Barcelona mætir Atletico Madrid á morgun í hreinum úrslitaleik um spænska meistaratitilinn og verður meistari með sigri. Það yrði sjöundi meistaratitill Messi á Spáni en hann hefur skorað 28 mörk í 30 deildarleikjum á tímabilinu.


Tengdar fréttir

Neymar og Messi eru bestu vinir

Brasilíumaðurinn Neymar er að klára sína fyrstu leiktíð með Barcelona og hefur honum gengið upp og ofan.

Xavi kemur Messi til varnar

Argentínski snillingurinn Lionel Messi hefur legið undir ámæli fyrir frammistöðu sína í síðustu leikjum Barcelona, en lítið hefur gengið hjá liðinu upp á síðkastið. Messi svaraði þó fyrir sig með því að skora sigurmark Börsunga gegn Athletic Bilbao í gær, en eftir leikinn kom Xavi Hernandez liðsfélaga sínum til varnar.

Barcelona í fyrsta sinn í hættu með að missa Messi

Þetta er búin að vera skelfileg vika fyrir Barcelona fótboltaliðið og ekki bættu fréttir spænskra fjölmiðla í morgun ástandið á Nývangi en allt snýst nú um meinta óánægju argentínska snillingsins Lionel Messi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×