Fótbolti

Elfsborg bikarmeistari | Arnór lék allan leikinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór Smárason og félagar þurftu að gera sér silfrið að góðu.
Arnór Smárason og félagar þurftu að gera sér silfrið að góðu. Heimasíða Helsingborgar
Elfsborg varð í dag sænskur bikarmeistari eftir 1-0 sigur á Helsingborgs á Friends Arena í Stokkhólmi. Þetta var þriðji bikarmeistaratitillinn sem Elfsborg vinnur í sögu félagsins.

Lasse Nilsson skoraði eina mark leiksins á 54. mínútu.

Arnór Smárason lék allan leikinn fyrir Helsingborgs, en hann hefur bæði orðið bikarmeistari í Hollandi og Danmörku á ferlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×