Fótbolti

Enrique ráðinn þjálfari Barcelona

Enrique á skrifstofu Barcelona í dag.
Enrique á skrifstofu Barcelona í dag. mynd/barcelona
Barcelona tilkynnti nú í kvöld að Luis Enrique væri búinn að skrifa undir samning við félagið. Hann verður þjálfari þess næstu tvö árin.

Við þessu var búist eftir að ljóst var að Tata Martino hætti með liðið  og Enrique hætti svo með Celta Vigo.

Enrique er 44 ára gamall og var leikmaður liðsins til fjölda ára. Hann var svo þjálfari B-liðs félagsins frá 2005 til 2011.

Þá tók hann við liði Roma á Ítalíu áður en hann fór aftur til Spánar og þjálfaði Celta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×