Fótbolti

Tvenna hjá Viðari Erni

Viðar Örn fagnar.
Viðar Örn fagnar.
Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að gera það gott í norska boltanum. Hann skoraði tvö mörk fyrir Vålerenga í 3-0 sigri á Strömsgodset.

Fyrra markið kom rétt fyrir hlé. Hann tók boltann á kassann og kláraði færið sitt vel. Seinna markið kom úr öruggri vítaspyrnu. Viðar Örn er búinn að skora sex mörk fyrir liðið í vetur.

Guðmundur Þórarinsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson voru báðir í liði Sarpsborg sem tapaði 2-0 gegn Odd.

Pálmi Rafn Pálmason kom af bekknum í liði Lilleström sem vann fínan 1-2 útisigur á Bodö/Glimt.

Guðmundur Kristjánsson var svo í liði Start sem tapaði 2-0 gegn Molde.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×