Fótbolti

Ronaldo meiddist og Real Madrid náði bara jafntefli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo meiddist í kvöld.
Cristiano Ronaldo meiddist í kvöld. Vísir/Getty
Real Madrid náði bara 1-1 jafntefli á móti Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en Real-menn átti möguleika á því að minnka forskot nágrannanna í Atlético Madrid í tvö stig með sigri.

Real Madrid liðið varð fyrir áfalli strax í upphafi leiks þegar Cristiano Ronaldo fór meiddur af velli eftir aðeins átta mínútna leik.

Sergio Ramos kom Real Madrid í 1-0 með marki beint úr aukaspyrnu á 35. mínútu en þetta var fimmta mark hans í síðustu fjórum leikjum.

Real Madrid virtist vera að landa þremur mikilvægum stigum þegar varamaðurinn Humberto Osorio jafnaði með skalla eftir hornspyrnu á 85. mínútu.

Carlo Ancelotti og lærisveinar hans í Real Madrid hafa þar með gert jafntefli í tveimur síðustu leikjum sínum og þessi fjögur töpuðu stig eru afar dýrkeypt.

Atlético Madrid er með þriggja stiga forskot á Barcelona og fjögurra stiga forskot á Real Madrid þegar tvær umferðir eru eftir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×