Fótbolti

Marta afgreiddi Soffíu og félaga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Soffía Gunnarsdóttir er á sínu fyrsta tímabili í sænsku deildinni en hér fagnar hún Íslandsmeistaratitli með Stjörnunni síðasta haust.
Soffía Gunnarsdóttir er á sínu fyrsta tímabili í sænsku deildinni en hér fagnar hún Íslandsmeistaratitli með Stjörnunni síðasta haust. Vísir/Daníel
Brasilíska knattspyrnukonan Marta skorað tvö mörk fyrir Tyresö í 3-0 útisigri á Soffíu Gunnarsdóttur og félögum hennar í Jitex í sænsku kvennadeildinni í fótbolta.

Marta átti öll þrjú mörkin sem komu á fyrstu  48 mínútum leiksins, skoraði mark númer eitt og þrjú og lagði síðan upp annað markið í millitíðinni fyrir Line Røddik Hansen.

Soffía Gunnarsdóttir var í byrjunarliði Jitex en var tekin af velli á 53. mínútu eða fimm mínútum eftir að Marta kom Tyresö í 3-0.

Jitex hefur tapað fyrstu fjórum leikjum sínum á leiktíðinni og á enn eftir að skora sitt fyrsta mark. Markatalan er 0-8 og því löngu ljóst að þetta verður erfitt tímabil fyrir Soffíu og félaga hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×