Benzema sá um Bayern | Sjáðu markið 23. apríl 2014 17:22 Benzema fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Real Madrid er í góðri stöðu í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 sigur á heimavelli á Evrópumeisturum Bayern München. Það var engu líkara en Real væri á útivelli því Bayern stýrði algjörlega ferðinni og var með boltann um 70 prósent leiktímans í fyrri hálfleik. Liðið náði þó ekki að skapa sér almennileg færi. Á 20. mínútu komst Real yfir eftir frábæra skyndisókn. Ronaldo með sendingu inn fyrir á Coentrao. Hann átti fullkomna sendingu í teiginn á Benzema sem gat ekki annað en skorað. Þetta var nánast fyrsta alvöru sókn Real í leiknum og hún skilaði marki. 1-0 fyrir Real í hálfleik en liðið fékk fleiri fín færi í hálfleiknum sem það nýtti ekki. Varnarleikur Real var áfram til fyrirmyndar í síðari hálfleik og Bayern fékk varla almennilegt færi fyrr en sjö mínútum fyrir leikslok. Þá var Götze með tíma í teignum en skot hans fór beint á Casillas. Bayern vildi fá víti í uppbótartíma er virtist vera brotið á Thomas Müller í teignum. Howard Webb dæmdi ekki neitt og leikmenn Bayern brjáluðust. Endursýningar leiddu í ljós að ekki var um neitt brot að ræða. Það var síðasta tækifæri liðsins og leikmenn Real fara með góða stöðu á Allianz-völlinn.Benzema kemur Real Madrid yfir.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Uppgjörið: Fram - Haukar 20-25 | Haukar bikarmeistarar í fyrsta sinn í átján ár Handbolti „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn Í beinni: Stjarnan - Fram | Langþráður titill í húfi Handbolti „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Fótbolti Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Enski boltinn Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti Fleiri fréttir Venezia hélt jöfnu gegn Atalanta Fyrrverandi markvörður Hattar lagði upp mark í toppslagnum Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Annað bikarævintýri hjá Júlíusi? „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Auðun tekur við Þrótti Vogum Messi var óánægður hjá PSG „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Hefur Amorim bætt Man United? Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Asensio skaut Villa áfram Albert kom við sögu í naumum sigri Bayern kom til baka gegn Stuttgart Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Ísak Bergmann skoraði í leik sem mátti ekki tapast en tapaðist samt Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Daði Berg frá Víkingi til Vestra Gera grín að Jürgen Klopp Víkingar skipta um gír Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Sjá meira