Fótbolti

Ronaldo með tvö mörk í sigri Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo skoraði tvö í kvöld.
Ronaldo skoraði tvö í kvöld. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo átti enn einn stórleikinn fyrir Real Madrid þegar liðið lagði Osasuna að velli með fjórum mörkum gegn engu í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Portúgalinn skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins sex mínútna leik með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig. Ronaldo bætti við marki á 52. mínútu, en það var ekki síður glæsilegt en það fyrra. Ronaldo er nú kominn með 30 mörk í La Liga og 47 alls á tímabilinu.

Sergio Ramos jók muninn í þrjú mörk eftir klukkutíma leik og það var svo hægri bakvörðurinn Daniel Carvajal sem skoraði fjórða og síðasta mark leiksins á 83. mínútu þegar hann skallaði boltann yfir Andrés í marki Osasuna.

Með sigrinum komst Real Madrid upp fyrir Barcelona í annað sæti La Liga. Liðið er nú með 82 stig, stigi á undan Börsungum og þremur á eftir toppliði Atletico Madrid, en bæði liðin eiga leiki á morgun.

Real Madrid leikur seinni leik sinn við Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á þriðjudaginn kemur. Madrid vann fyrri leikinn á heimavelli með einu marki gegn engu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×