Fótbolti

Dani Alves borðaði banana sem kastað var að honum | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Barcelona hélt titildraumum sínum á lífi í kvöld með 3-2 útsigri á Villareal en frekar ósmekklegt atriði kom upp í leiknum.

Þegar Dani Alves, brasilíski hægri bakvörðurinn í liði Barcelona, ætlaði að taka hornspyrnu á 76. mínútu leiksins í stöðunni 2-1 fyrir Villareal var hann beittur kynþáttaníði.

Einn stuðningsmaður Villareal kastaði banana í átt að hinum hörundsdökka Alves en Brassinn lét það nú ekkert á sig fá heldur tók upp bananann og borðaði hann.

Forsvarsmenn Villareal eiga væntanlega von á símtali frá yfirmönnum spænsku 1. deildarinnar og jafnvel sekt fyrir hegðun þessa jólasveins í stúkunni.

Brasilíumaðurinn Neymar, liðsfélagi og landi Alves, birti myndina að neðan á Twitter að leik loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×