Fótbolti

Eto'o: Mourinho lagði þetta allt upp

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Strákarnir í Chelsea voru hressir eftir sigurinn.
Strákarnir í Chelsea voru hressir eftir sigurinn. Vísir/Getty
Samuel Eto'o, framherji Chelsea, hrósar knattspyrnustjóra sínum JoséMourinho í hástert fyrir það hvernig hann lagði upp seinni leik liðsins gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.

Chelsea tapaði fyrri leiknum á útivelli, 2-0, en komst áfram með 2-0 sigri á heimavelli þar sem André Schürrle skoraði fyrra markið í fyrri hálfleik og DembaBa skaut liðinu svo áfram undir lok leiksins.

„Þetta er ótrúlegt,“ segir Eto'o í viðtali við The Sun. „Mourinho sagði okkur allt frá morgni leikdags að við myndum vinna einvígið og þá vissum við að þetta væri hægt.“

„Hann skapaði þessa ótrúlegu senu fyrir okkur. Þetta er hluti af töfrunum í kringum fótboltann. Mourinho sagði okkur að vera ekki að flýta okkur of mikið. Hann sagði að við myndum skora mark í fyrri hálfleik og annað undir lok leiksins,“ segir Samuel Eto'o.

Chelsea verður í pottinum þegar dregið verður í undanúrslitin á morgun en þar verða einnig spænsku liðin Real Madrid og Atlético Madrid auk Evrópumeistara Bayern München.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×