Fótbolti

Hannes Þór varði víti í jafnteflisleik

Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson byrjar vel með liði sínu Sandnes Ulf en hann varði vítaspyrnu í leik liðsins í kvöld.

Það dugði ekki til sigurs gegn Brann því leikurinn endaði 1-1. Brann jafnaði leikinn átta mínútum fyrir leikslok.

Birkir Már Sævarsson lék allan leikinn fyrir Brann sem fékk sitt fyrsta stig í kvöld.

Sandnes er aftur á móti með tvö stig eftir þrjá leiki. Steven Lennon, fyrrum leikmaður Fram, er einnig í liði Sandnes og fór hann af velli tíu mínútu fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×