Fótbolti

Viðar kom til bjargar á elleftu stundu

Viðar er að gera það gott hjá Vålerenga.
Viðar er að gera það gott hjá Vålerenga.
Viðar Örn Kjartansson bjargaði stigi fyrir Vålerenga í dag er hann jafnaði fyrir sitt lið í uppbótartíma.

Markið kom á 92. mínútu og var úr vítaspyrnu. Lokatölur 1-1 í útileik gegn Haugesund.

Vel af sér vikið hjá Viðari sem mætti töskulaus til Haugesund. Hafði ekki einu sinni skó til að spila í. Það fundust greinilega skór á hann og þeir dugðu fyrir einu stigi.

Vålerenga komið með fjögur stig eftir þrjár umferðir í norsku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×