Íslenski boltinn

Rebekka fór úr KR í Val

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals.
Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals. Vísir/Stefán
Rebekka Sverrisdóttir hefur gert tveggja ára samning við Val og leikur með liðinu í Pepsi-deild kvenna í sumar.

Rebekka verður 22 ára í ár og hefur leikið með KR allan sinn feril. Hún á að baki 74 leiki með liðinu í deild og bikar og skoraði í þeim eitt mark.

Hún er nú stödd í Bandaríkjunum þar sem hún er í námi og kemur til landsins í byrjun maímánaðar. Hún er varnarmaður en getur einnig spilað á kantinum.

Þetta er ekki fyrsti varnarmaðurinn sem Valur fær til liðs við sig því fyrr í vetur samdi liði við Gígju Valgerði Harðardóttur sem kemur frá Þór/KA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×