Fótbolti

Þetta eru leikmennirnir sem komu Barcelona í klandur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lee með félögum sínum í unglingaliði Barcelona.
Lee með félögum sínum í unglingaliði Barcelona. Mynd/Facebook-síða Lee
Barcelona var nýverið meinað að kaupa nýja leikmenn í rúmt ár eftir að hafa brotið reglur um félagaskipti ungmenna.

Barcelona er með öflugt ungmennastarf sem fer fram í La Masia-akademíunni og njósnarar á vegum félagsins hafa verið duglegir að leita að ungum og efnilegum leikmönnum víða um heim fyrir félagið.

Lionel Messi var aðeins þrettán ára gamall þegar hann fluttist með fjölskyldu sinni frá Argentínu til Barcelona og gekk í raðir félagsins.

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA komst að þeirri niðurstöðu að Barcelona hafi brotið reglur þess um félagaskipti erlendra leikmanna undir átján ára aldri alls tíu sinnum á árunum 2009 til 2013.

Meðal leikmanna í þessum hópi er hinn sextán ára Seung Woo Lee frá Suður-Kóreu. Hann heillaði útsendara liðsins þegar hann lék með U-14 liði Suður-Kóreu gegn jafnöldrum sínum frá Katalóníu.

Lee kom svo í La Masia árið 2011 og skrifaði svo undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við Barcelona í síðasta mánuði, eftir að hann náði sextán ára aldri.

Honum var þó heimilt að fara frá félaginu og semja við hvaða lið sem er, eins og öllum undir átján ára aldri er heimilt að gera á Spáni. Lee, sem hefur verið kallaður hinn suður-kóreski Messi, var orðaður við bæði Liverpool og Chelsea en valdi að halda tryggð við Barcelona - þrátt fyrir boð um hærri laun í Englandi.

Barcelona hefur reyndar misst þó nokkra unga leikmenn úr La Masia til Englands af fjárhagslegum ástæðum á undanförnum árum.

Þýska blaðið Bild tók saman þá leikmenn sem Barcelona fékk til sín frá árunum 2009 til 2013 á ólöglegan máta, samkvæmt reglum FIFA. Þeir eru:

Seung Woo Lee (Suður-Kórea)

Paik Seung-Ho (Suður-Kórea)

Jang Gyeolhee (Suður-Kórea)

Theo Chendri (Frakkland)

Bobby Adekanye (Nígería, en með hollenskt vegabréf)

Patrice Sousia (Kamerún)

Giancarlo Poveda (Kamerún)

Andrei Onana (Kamerún)

Maxi Rolón (Kamerún)

Antonio Sanabria (Paragvæ)


Tengdar fréttir

Þetta er ósanngjörn refsing

Foresti Barcelona er ekki ánægður með ákvörðun FIFA um að banna félaginu að kaupa leikmenn næsta árið.

Fullyrt að Halilovic fari til Barcelona

Lögfræðingurinn Jean Louis Dupont segir að Alen Halilovic eigi að geta gengið til liðs við Barcelona í sumar þrátt fyrir félagskiptabann FIFA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×