Fótbolti

Messi með tvö í sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Barcelona minnkaði forystu Atletico Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 3-1 sigur á botnliði Real Betis á Nývangi í dag.

Lionel Messi skoraði tvö mörk fyrir Börsunga í dag. Hann kom sínum mönnum yfir með marki úr vítaspyrnu á 14. mínútu en heimamenn tvöfölduðu svo forystuna með sjálfsmarki Jordi Figueras á 67. mínútu.

Ruben Castro náði svo að minnka muninn fyrir Real Betis en Messi innsiglaði sigurinn endanlega á 86. mínútu er hann fylgdi eftir eigin vítaspyrnu sem var varin.

Barcelona er einu stigi á eftir Atletico Madrid sem vann Villarreal fyrr í dag, 1-0. Real Madrid er svo með 74 stig en á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×