Fótbolti

Atletico heldur toppsætinu á Spáni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Raul Garcia fagnar marki sínu í dag.
Raul Garcia fagnar marki sínu í dag. Vísir/Getty
Raul Garcia tryggði Atletico Madrid 1-0 sigur á Villarreal í fyrsta leik dagsins í spænsku úrvalsdeildinni.

Markið skoraði hann á fjórtándu mínútu eftir undirbúning Koke. Með sigrinum komst Atletico í 79 stig og því ljóst að liðið heldur toppsæti sínu í deildinni þessa helgina.

Barcelona og Real Madrid koma í næstu sætum á eftir en þau eiga bæði eftir að spila í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×