Körfubolti

Jón Arnór skoraði 5 stig í sigri á Barcelona

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
mynd/daníel
CAI Zaragoza gerði sér lítið fyrir og skellti Barcelona 85-79 á heimavelli í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Zaragoza var ellefu stigum yfir í hálfleik 42-31.

Leikurinn var mjög spennandi en leikmenn Zaragoza voru öruggir á vítalínunni undir lokin og lönduðu frábærum sigri.

Jón Arnór Stefánsson skoraði 5 stig og gaf 5 stoðsendingar í liði Zaragoza auk þess að taka 2 fráköst á tæplega 20 mínútum.

Barcelona er í þriðja sæti deildarinnar en Zaragoza fór með sigrinum upp í 5. sæti með þremur sigrum minna en Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×