Fótbolti

Varamennirnir skutu Chelsea í undanúrslit | Sjáðu mörkin

Terry fagnar markaskoraranum Schürrle.
Terry fagnar markaskoraranum Schürrle. Vísir/Getty
Chelsea er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 sigur á PSG. Franska liðið vann fyrri leikinn 3-1 og Chelsea fer áfram á markinu sem það skoraði á útivelli. Varamenn Chelsea sáu um markaskorun í kvöld.

Mörgum stuðningsmönnum Chelsea leist ekkert á blikuna er þeirra besti maður, Eden Hazard, fór af velli vegna meiðsla. Það var aftur á móti varamaður hans, Andre Schürrle, sem kom Chelsea yfir með skoti í teignum.

1-0 í hálfleik og Chelsea einu marki frá því að komast áfram í undanúrslit.

Títtnefndur Schürrle var ekki fjarri því að koma liðinu í 2-0 snemma í síðari hálfleik. Þá átti hann bylmingsskot sem hafnaði í slánni. Örskömmu síðar átti Oscar skot úr aukaspyrnu sem einnig hafnaði í slánni.

Markið kom ekki fyrr en rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Þá skoraði varamaðurinn Demba Ba. Skot og boltinn endaði hjá Ba sem skóflaði boltanum í netið.

PSG sótti eins og það gat undir lokin. Var ekki fjarri því að skora í uppbótartíma en allt kom fyrir ekki.



Schurrle kemur Chelsea yfir. Demba Ba skorar markið sem kom Chelsea áfram. Viðtal við John Terry og Demba Ba.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×