Fótbolti

Marta og Þórunn Helga samherjar á ný?

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Marta er mögnuð knattspyrnukona.
Marta er mögnuð knattspyrnukona. Vísir/Getty
Brasilíska knattspyrnukonan Marta sem fimm sinnum í röð var kjörin sú besta í heiminum árin 2006-2010 gæti endað í norska Íslendingaliðinu Avaldsnes.

Þetta kemur fram á nrk.no en þar segir að Marta hafi nú þegar gefið út yfirlýsingu um að hún verði ekki áfram hjá sænska liðinu Tyresö. Það hefur barist um sænska meistaratitilinn undanfarin þrjú ár við landsliðskonurnar Þóru B. Helgadóttur og Söru Björk Gunnarsdóttur í Malmö.

Sænska liðið er í miklum fjárhagsörðugleikum og ætlar Marta ekki að taka frekari þátt í fótboltanum þar í bæ.

Eðli málsins samkvæmt eru ótal félög áhugasöm um að fá þessa frábæru knattspyrnukonu til liðs við sig en norska úrvalsdeildarliðið Avaldsnes er eitt þeirra.

Með því leika íslensku landsliðskonurnar Sif Atladóttir, HólmfríðurMagnúsdóttir og ÞórunnHelgaJónsdóttir sem áður lék með Mörtu í Brasilíu. MistEdvarsdóttir og GuðbjörgGunnarsdóttir voru einnig á mála hjá liðinu á síðasta tímabili þegar nýliðarnir komust alla leið í bikarúrslitaleikinn.

„Við fengum fyrirspurn frá umboðsskrifstofunni hennar. Við tökum hana alvarlega og erum að skoða málið,“ segir ArneUtvik, varaformaður Avaldsnes, við nrk.no.

Avaldsnes er sterkt fjárhagslega en það þarf mikla peninga til að fá Mörtu til að spila með sér. Hjá Tyresö fékk hún 168.000 sænskar krónur á mánuði eða jafnvirði þremur milljónum íslenskra króna. Slíkir peningar þekkjast almennt ekki í kvennaboltanum á Norðurlöndum.

Vilji Marta virkilega spila með norska liðinu þurfa umboðsmenn hennar að hafa aftur samband við Avaldsnes.

„Við fengum þessa fyrirspurn og sögðumst taka hana alvarlega. En nú verða þeir að hafa samband aftur. Ekki ætla ég að hringja í þá,“ segir Arne Utvik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×