Fótbolti

Schürrle: Við gáfumst aldrei upp

Schürrle fær góð ráð frá Mourinho í kvöld.
Schürrle fær góð ráð frá Mourinho í kvöld. vísir/getty
Varamaðurinn Andre Schürrle var óvænt hetja hjá Chelsea gegn PSG í kvöld. Hann kom af bekknum í fyrri hálfleik fyrir Eden Hazard og kom Chelsea yfir.

"Þetta var frábær leikur og ótrúleg tilfinning að hafa náð að klára þetta dæmi," sagði Schürrle brosmildur eftir leik.

"Það var engin pressa á okkur. Við vissum að við yrðum að vera þolinmóðir í bið okkar eftir seinna markinu. Við skutum tvisvar í slána og gáfumst aldrei upp.

"Mourinho vissi alveg hvernig staðan var. Hann hélt nokkrar góðar ræður og talaði mikið um hversu mikilvægt væri að vera þolinmóðir."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×