Fótbolti

Valdes verður frá í sjö mánuði

Valdes er hér borinn af velli.
Valdes er hér borinn af velli. vísir/getty
Markvörður Barcelona, Victor Valdes, er búinn að fara í aðgerð vegna hnémeiðslanna sem hann varð fyrir á dögunum. Nú tekur við sjö mánaða hvíld hjá honum.

Það þýðir að þessi 32 ára gamli markvörður mun missa af HM í sumar þar sem hann hefði líklega verið aðalmarkvörður hjá spænska landsliðinu.

Valdes sleit krossband í leik gegn Celta Vigo og fór í aðgerðina í Þýskalandi.

Samningur hans við Barcelona rennur út í sumar en hann hefur spilað 535 leiki fyrir félagið. Hann er búinn að vinna spænsku deildina sex sinnum og Meistaradeildina þrisvar sinnum.


Tengdar fréttir

Valdes sleit krossband | Myndband

Victor Valdes, markvörður Barcelona, er búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið en hann meiddist á hné í kvöld í leik Barcelona og Celta Vigo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×