Fótbolti

Barcelona reiðubúið að bjóða Valdes nýjan samning

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Victor Valdes sleit nýverið krossband í hné en félag hans er engu að síður reiðubúið að bjóða honum nýjan samning.

Það lá fyrir að Valdes myndi fara frá Barcelona í lok tímabilsins þegar samningur hans myndi renna út. En svo hlaut hann alvarleg meiðsli í leik gegn Celta Vigo í vikunni sem breyttu miklu.

„Við vitum að hann er í slæmri stöðu og félagið stendur með honum,“ sagði Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, við fjölmiðla á Spáni.

„Við vitum reyndar ekki hvort hann sé búinn að semja við annað félag en við værum ánægð með að hafa hann hjá okkur áfram.“

Valdes hefur verið sterklega orðaður við Monaco og hefur verið fullyrt í fjölmiðlum að samningurinn sé þegar undirritaður. Markvörðurinn öflugi var svo einnig sagður á leið til Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×