Fótbolti

Bayern sló Arsenal út úr Meistaradeildinni annað árið í röð | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Arsenal situr fjórða árið í röð eftir í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir 1-1 jafntefli á móti þýsku meisturunum í Bayern München á Allianz Arena í München í kvöld en Bæjarar unnu fyrri leikinn 2-0 og þar með 3-1 samanlagt.

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, tók litla áhættu í þessum leik og varkárir Arsenal-menn áttu fyrir vikið ekki mikla möguleika á móti sterku liði Bayern München. Jöfnunarmark Lukas Podolski setti smá spennu í leikinn en Bayern-liðið fékk nokkur góð færi til að tryggja sér sigurinn í seinni hálfleiknum þar á meðal lét Thomas Müller verja frá sér vítaspyrnu.

Arsenal-menn tóku ekki mikla áhættu í fyrri hálfleiknum og vörðust aftarlega á vellinum. Bæjarar voru með öll tök á leiknum en tókst þó ekki að skapa sér mikið í rólegum fyrri hálfeik. Það breyttist hinsvegar í þeim síðari.

Bastian Schweinsteiger kom Bayern í 1-0 á 55. mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá Franck Ribery sem labbaði framhjá varnarmönnum Arsenal-liðsins. Það tók landa Schweinsteiger, Lukas Podolski, aðeins tvær mínútur að jafna metin í 1-1. Bæjarar vildu reyndar fá brot dæmt á Podolski fyrir að hrinda Philipp Lahm en ekkert var dæmt og Podolski skoraði úr fyrstu alvöru sókn Arsenal-manna í leiknum.  

Bayern-liðið hélt áfram góðum tökum á leiknum og fékk nokkur færi til að tryggja sér sigur þar á meðal fékk Mario Mandzukic mjög gott færi þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Eitt mark frá Arsenal gat samt alltaf sett mikla spennu í leikinn en enska liðið náði aldrei að ógna þýska liðinu og því kláraðist leikurinn án mikilla tilþrifa lærisveina Arsene Wenger.

Varamaðurinn Thomas Müller gat tryggt Bayern sigurinn í uppbótartíma eftir að Arjen Robben fiskaði víti en pólski markvörðurinn Lukasz Fabianski varði vítið frá honum.  Liðin sættust því á jafntefli sem þýddi að Bayern var búið að slá Arsenal út úr Meistaradeildinni annað árið í röð.

Bastian Schweinsteiger kom Bayern í 1-0 á 55. mínútu.Vísir/Getty
Varamaðurinn Thomas Müller gat tryggt Bayern sigurinn í uppbótartíma eftir að Arjen Robben fiskaði víti en pólski markvörðurinn Lukasz Fabianski varði vítið frá honum.Vísir/Getty
Bastian Schweinsteiger kom Bayern í 1-0 á 55. mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá Franck Ribery sem labbaði framhjá varnarmönnum Arsenal-liðsins. Það tók landa Schweinsteiger, Lukas Podolski, aðeins tvær mínútur að jafna metin í 1-1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×