Fótbolti

Messi bætti markamet Barcelona í risasigri

Ótrúlegur. Messi fagnar sínu 370. marki fyrir Barcelona í dag.
Ótrúlegur. Messi fagnar sínu 370. marki fyrir Barcelona í dag. vísir/getty
Lionel Messi varð í dag markahæsti leikmaður í sögu Barcelona. Hann er búinn að skora 371 mörk fyrir félagið þó svo hann sé aðeins 26 ára gamall.

Messi náði þessum ótrúlega áfanga fyrir þetta risafélag í ótrúlegum 7-0 sigri Barcelona á Osasuna í dag. Messi skoraði þrennu í leiknum.

Hann var einu marki frá metinu fyrir leikinn. Hann lét sér því ekki nægja að jafna metið og slá það. Hann bætti einu marki við til viðbótar.

Barcelona er fjórum stigum á eftir toppliði Real Madrid eftir þennan sögulega sigur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×