Fótbolti

Messi: Ætlum að vinna Real Madrid

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lionel Messi tók boltann með sér heim í gær eftir 18. þrennuna í búningi Barcelona
Lionel Messi tók boltann með sér heim í gær eftir 18. þrennuna í búningi Barcelona Vísir/Getty
„Ég hef loksins náð mér að fullu,“ sagði LionelMessi, leikmaður Barcelona, eftir sigurinn á Osasuna í gær en hann skoraði þrennu í leiknum.

Argentínumaðurinn er nú búinn að skora tíu mörk í síðustu sjö leikjum og varð í gær markahæsti leikmaður Barcelona í sögunni með 371 mark.

„Ég er kominn aftur í takt við leikinn og finn fyrir meira sjálfstrausti. Mér líður mjög vel. Ég er að komast í mitt besta form,“ sagði Messi sem er ánægður með markametið.

„Það er flott að vera orðinn markahæsti leikmaður félagsins. Mikið hefur verið rætt og ritað um þetta og nú á ég metið. Það er samt mikið sem mig langar enn að afreka. Ég ætla vera hjá Barcelona allan minn feril. Hér líður mér vel og verð eins lengi og félagið vill hafa mig.“

Messi hefur í tvígang verið frá í nokkrar vikur vegna meiðsla tímabilinu en er samt búinn að skora 18 deildarmörk í 21 leik og 31 mark í 33 leikjum í heildina.

Strákarnir fagna einu af mörkum Messi í gærkvöldi.Vísir/Getty
Verða að vinna Real Madrid

Það er eins gott fyrir Barcelona að Messi sé að komast í sitt besta stand því liðið ferðast til Madrídar um næstu helgi og mætir erkifjendunum í Real Madrid í seinni El Clásico-leik spænsku deildarinnar í vetur.

Sigur er gífurlegar mikilvægur fyrir Barcelona því tap gerir líklega út um titilvonir liðsins. Real er á toppnum, fjórum stigum á undan Barcelona og sjö stiga forysta yrði eflaust of mikil fyrir Börsunga að brúa.

Real Madrid er á ótrúlegu skriði en liðið hefur ekki tapað í 30 leikjum í röð í öllum keppnum. Síðast tapaði Real einmitt fyrir Barcelona, 2-0, í El Clásico á Nývangi 26. október.

„Það verður erfiður leikur en við vonumst eftir góðum úrslitum. Við viljum vinna Real Madrid og opna titilbaráttuna upp á gátt. Markmið okkar er að berjast um titilinn fram til síðasta leiks,“ sagði Messi.

Markamet Messi nær yfir alla leiki, þar með talda æfingaleiki en fyrir utan þá hefur hann skorað 344 mörk í 412 leikjum síðan hann kom fyrst við sögu tímabilið 2004/2005.

Vísir/Getty
Vísir/Getty
Mörk Messi.Mynd/Wikipedia

Tengdar fréttir

Messi bætti markamet Barcelona í risasigri

Lionel Messi varð í dag markahæsti leikmaður í sögu Barcelona. Hann er búinn að skora 371 mörk fyrir félagið þó svo hann sé aðeins 26 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×