Fótbolti

Ronaldo með tvö í auðveldum sigri | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Real Madrid er komið áfram í fjórðungsúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir skyldusigur á Schalke frá Þýskalandi, 3-1, og 9-2 samanlagt.

Cristiano Ronaldo kom Madrídingum yfir í fyrri hálfleik eftir undirbúning Gareth Bale en Tim Hoogland jafnaði metin fyrir gestina tíu mínútum síðar eftir að skot hans hafði breytt um stefnu á varnarmanni.

Real gerði svo út um leikinn á tveggja mínútna kafla seint í leiknum með mörkum Ronaldo og Alvaro Morata. Ronaldo er nú kominn með 41 mark í öllum keppnum á tímabilinu.

Real Madrid varð þó fyrir blóðtöku í kvöld þar sem sóknarmaðurinn Jese var borinn af velli snemma leiks. Er óttast að hann sé með slitið krossband.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×