Fótbolti

Mancini: Við áttum ekkert skilið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Roberto Mancini, stjóri Galatasary, var hundóánægður með sína menn eftir tapið gegn Chelsea í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Chelsea vann samanlagt, 3-1, eftir 2-0 sigur á heimavelli í kvöld. Leikmenn Galatasaray gerðu sig aldrei líklega til afreka í kvöld.

„Ég vorkenni stuðningsmönnum okkar því þeir voru bestu leikmenn okkar í kvöld. Við gerðum ekkert á vellinum og áttum ekkert skilið,“ sagði Mancini eftir leikinn.


Tengdar fréttir

Mourinho: Leikmennirnir eiga þetta skilið

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að það hafi verið mikilvægur áfangi fyrir félagið að komast áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×