Fótbolti

Eyjólfur með í fyrsta sinn í fimm mánuði

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/getty
Eyjólfur Héðinsson lék síðasta stundarfjórðunginn þegar Midtjylland skellti FC Kaupmannahöfn 5-1 í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Þetta var fyrsta sinn síðan í október sem Eyjólfur leikur með liði sínu en hann hefur átt við meiðsli á stríða.

Rúrik Gíslason var í byrjunarliði FCK en var skipt af leikvelli á 62. mínútu.

MIdtjylland er á toppi deildarinnar með 39 stig, fimm stigum á undan Aab þegar tvær umferðir eru eftir. FCK er í þriðja sæti átta stigum á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×