Fótbolti

Atletico upp fyrir Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Villa skoraði bæði mörk Atletico í kvöld.
David Villa skoraði bæði mörk Atletico í kvöld. Vísir/AFP
Atletico Madrid komst við hlið granna sinna í Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Atletico vann 2-0 sigur á Celta de Vigo á útivelli en David Villa skoraði mörk leiksins með tveggja mínútna millibili í síðari hálfleik.

Liðið er nú með 64 stig, rétt eins og Real Madrid sem á leik til góða gegn Levante á morgun.

Barcelona situr eftir í þriðja sætinu með 63 stig eftir óvænta tap gegn Real Valladolid fyrr í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×