Fótbolti

Fjórir útisigrar jöfnuðu met í Meistaradeildinni

Börsungar fagna á Etihad.
Börsungar fagna á Etihad. Vísir/Getty
Bayern München, Barcelona, Atlético Madrid og Paris Saint-Germain eru öll í fínum málum eftir góða sigra í fyrri viðureign sínum í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Heimaliðin, sem enduðu í 2. sæti sinna riðla, skoruðu ekki einu sinni eitt mark á móti þeim. Þó verður að taka til greina að ensku liðin Man. City og Arsenal misstu mann af velli.

Þessi fjögur lið unnu sína riðla og hefja því leik í 16 liða úrslitum á útivelli eins og reglur kveða á um og hafa gert síðan útsláttarfyrirkomulag með 16 liðum var tekið upp tímabilið 2003/2004.

Þetta fyrirkomulag er nú á sinni elleftu leiktíð en aðeins einu sinni á tíu árum kom það fyrir að toppliðin unnu fjóra útileiki af átta í fyrri viðureignum sínum í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Það var tímabilið 2010/2011 þegar Tottenham, Bayern München, Shakhtar Donetsk og Chelsea unnu öll útsigra á þessu stigi keppninnar en öll unnu sína riðla.

Útsigrarnir fjórir sem unnust á þriðjudag og miðvikudag eru því nú þegar búnir að jafna besta árangur toppliða riðlanna og eru fjórir leikir eftir til að bæta metið.

Leikirnir sem eftir eru: Olympiacos - Man. Utd, Galatasaray - Chelsea, Schalke - Real Madrid og Zenit - Dortmund. Það er því ekki úr vegi að metið verði bætt og rúmlega það.

Útisigrarnir fjórir sem unnust í vikunni:

Man. City - Barcelona 0-2

Leverkusen - PSG 0-4

Arsenal - Bayern 0-2

AC Milan - Atlético 0-1

Útisigrarnir fjórir á sama stigi Meistaradeildarinnar 2011:

Roma - Shakhtar 2-3

AC Milan - Tottenham 0-1

Inter - Bayern 0-1

FC Kaupmannahöfn - Chelsea 0-2

Bæjarar sóttu sigur á Emirates.Vísir/Getty
Zlatan og félagar völtuðu yfir Leverkusen í Þýskalandi.Vísir/Getty
Diego Costa skoraði sigurmark Atlético gegn Balotelli og félögum í Milan.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×