Fótbolti

Stórsigur hjá Hallgrími og félögum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hallgrímur er hér fyrir miðri mynd.
Hallgrímur er hér fyrir miðri mynd. Vísir/Pjetur
Vortímabilið hófst í dönsku úrvalsdeildinni í dag en botnlið SönderjyskE vann þá 4-0 stórsigur á Vestsjælland.

Hallgrímur Jónsson spilaði allan leikinn á miðjunni hjá SönderjyskE sem vann aðeins fjóra leiki í fyrstu átján umferðunum.

Liðið er enn í fallsæti en sigurinn í dag veit á gott fyrir framhaldið. Liðið er nú jafnt Esbjerg að stigum og tveimur á efitr Viborg og Vestsjælland.

Midtjylland trónir á toppi deildarinnar með 36 stig og mætir OB á útivelli á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×