Fótbolti

Sigurganga Real Madrid heldur áfram

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Vísir/Getty
Það skiptir Real Madrid litlu þó Cristiano Ronaldo sé í banni þessa dagana því liðið vann alla þrjá deildarleikina án hans.

Nú síðast vann Real öruggan sigur á Elche í spænsku 1. deildinni í dag, 3-0, en mörkin skoruðu Asier Illarramendi, Gareth Bale og Isco.

Þetta er sjötti sigurleikur Real Madrid í röð í öllum keppnum og enn fremur hefur það ekki tapað í 27 leikjum í röð eða síðan það tapaði gegn Barcelona 26. október.

Real komst á topp deildarinnar með sigrinum. Það er með 63 stig, þremur stigum meira en Barcelona og Atlético Madrid sem eiga leiki til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×