Menning

Ekki vera skítseiði

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
„Maður á ekki að vera skítskeiði og ekki bara að hugsa um sjálfan sig, heldur koma samferðarfólki sínu til aðstoðar , jafnvel þó það kosti einhverjar fórnir”, segir Sigrún Valbergsdóttir, leikstjóri þegar hún var spurð hver boðskapurinn væri í leikritinu „Bróðir minn Ljónshjarta”, sem Leikfélag Selfoss sýnir nú í Litla leikhúsinu við Sigtún.

Bróðir minn Ljónshjarta er eftir Astrid Lindgren en verkið þarf vart að kynna fyrir fólki því þetta er ein magnaðasta saga höfundarins. Bræðurnir Karl og Jónatan hittast aftur, eftir stutta jarðneska dvöl, í landinu Nangijala, þar sem sögur eru sagðar við varðeldana. Lífið í Kirsuberjadal mótast af grimma Riddaranum Þengli, sem ásamt eldspúandi drekanum Kötlu ræður þar ríkjum og valda þau skelfingu hvar sem þau koma. Karl og Jónatan, sem kallaðir eru bræðurnir Ljónshjarta, ákveða að berjast við hinn grimma Þengil og svartklæddu Riddarana hans.

Tuttugu leikarar taka þátt í sýningunni og eru aðalhlutverk í höndum Baldvin Alans Gunnarssonar, úr Hveragerði, sem leikur Snúð, og Bjarka Þórs Sævarssonar, á Selfossi, sem leikur Jónatan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.