Fótbolti

Jafnt hjá Chelsea í Tyrklandi | Sjáðu mörkin

Torres fagnar marki sínu í kvöld.
Torres fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Mark Fernando Torres dugði Chelsea ekki til sigurs gegn Galatasaray í Meistaradeildinni. Chelsea fer þó í síðari leikinn á heimavelli með fína stöðu.

Chelsea byrjaði leikinn með miklum látum og náði mikilvægu útivallarmarki snemma. Þá batt Fernando Torres endahnútinn á smekklegri sókn.

Lið Galatasaray ógnaði lítið og varðist enn verr. Það voru svo sannarlega tækifæri fyrir Chelsea til þess að bæta við en liðið nýtti það ekki og staðan 0-1 í hálfleik.

Tyrkneska liðið spýtti í lófana í síðari hálfleik og Chedjou jafnaði metin með fínu marki.

Chelsea bakkaði í kjölfarið og náði að halda aftur af tyrkneska liðinu. Chelsea fer því með ágæta stöðu heim í síðari leikinn.





Fernando Torres kemur Chelsea yfir. Jöfnunarmark Aurelien Chedjou.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×