Fótbolti

Mancini ánægður með jafnteflið

Drogba náði ekki að skora gegn sínum gömlu félögum í kvöld.
Drogba náði ekki að skora gegn sínum gömlu félögum í kvöld. vísir/getty
Fyrrum stjóri Man. City, Roberto Mancini, er nú þjálfari hjá Galatasaray og hann var tiltölulega sáttur með jafnteflið gegn Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld.

"Á endanum gætu þetta orðið góð úrslit fyrir okkur. Ef við spilum seinni leikinn eins og við spiluðum seinni hálfleikinn þá er allt hægt. Við lágum of langt til baka í fyrri hálfleik," sagði Mancini.

"Þeir fengu að sækja hratt á okkur eins og þeir vildu framan af. Það sátu of margir leikmenn eftir og það má ekki gera gegn Chelsea.

"Ég bætti við miðjumanni og það lagaði okkar spil. 1-1 er fín úrslit og við eigum enn möguleika á því að komast áfram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×