Fótbolti

Blaðamenn særðu stolt Messi

Lionel Messi.
Lionel Messi. vísir/getty
Lionel Messi sýndi í gær að hann er kominn í sitt gamla góða form. Hann skoraði þá tvö mörk í 4-1 sigri Barcelona á Sevilla.

Bæði mörkin voru afar glæsileg og Messi lagði þess utan upp eitt mark í leik sem fór fram í miklu slagveðri.

Messi hefur verið nokkuð gagnrýndur upp á síðkastið og þjálfarinn hans, Gerardo Martino, segir að hann hafi tekið þá gagnrýni inn á sig.

"Þeir sem eru að gagnrýna hann skilja ekki að þeir særa stolt hans. Þegar menn særa stolt besta knattspyrnumanns heims þá svarar hann svona," sagði Martino eftir leikinn í gær.

Argentínski snillingurinn er að komast almennilega í gang aftur eftir meiðsli. Hann var frá í tvo mánuði og eðlilegt að hann hafi aðeins verið ryðgaður í fyrstu leikjum sínum eftir meiðslin.

"Leo hverfur aldrei. Hann er einn af fáum leikmönnum heims sem getur snúið leikjum á nokkrum sekúndum eða metrum. Hann gerir það hvað eftir annað."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×