Fótbolti

Flugeldasýning hjá Barcelona

Messi skorar fyrra mark sitt í kvöld með frábærri vippu.
Messi skorar fyrra mark sitt í kvöld með frábærri vippu. vísir/getty
Barcelona flaug aftur á topp spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld er liðið niðurlægði Rayo Vallecano á Camp Nou.

Barcelona vann leikinn 6-0. Fyrsta markið frá Adriano kom á 2. mínútu og Barcelona slakaði aldrei á klónni.

Lionel Messi skoraði tvö lagleg mörk og þeir Alexis Sanchez, Pedro og Neymar komust einnig á blað.

Barca er með 60 stig eins og Atletico Madrid. Real Madrid er með 57 stig og getur jafnað hin tvö liðin á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×