Fótbolti

Ronaldo hefur hjálpað mér mikið

Ronaldo faðmar Jese.
Ronaldo faðmar Jese. vísir/getty
Hinn tvítugi framherji Real Madrid, Jese Rodriguez, hefur slegið í gegn í vetur og er farinn að spila reglulega fyrir liðið.

Jese hefur verið hjá Real síðan árið 2007 og hann þakkar Cristiano Ronaldo fyrir sína aðstoð.

"Það fara allir vel með mig og hjálpa mér. Metnaðurinn hjá Cristiano er gríðarlega smitandi. Hann keyrir okkur áfram á hverjum degi," sagði Jese en hann talar líka fallega um þjálfarann, Carlo Ancelotti.

"Ancelotti hefur líka staðið sig frábærlega. Hann er sigurvegari og vill alltaf fá meira frá liðinu. Hann hefur bætt minn leik og ég ætla að halda áfram á þeirri braut."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×