Leikjavísir

Sala á PS4 gengur vonum framar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Íslendingar flykktust í verslanir þegar PS4 kom út hér á landi.
Íslendingar flykktust í verslanir þegar PS4 kom út hér á landi. visir/valli
Sala á Playstation 4 leikjatölvunni hefur farið ótrúlega vel af stað fyrstu mánuðina en fyrirtækið hefur selt 5,3 milljónir eintaka í heiminum.

Playstation 4 fer í sölu í Japan þann 22. febrúar en Sony er japanskt fyrirtæki og er eftirvæntingin mikil þar í landi.

Aðal samkeppnisaðilinn Microsoft hefur selt 3,9 milljónir eintaka af Xbox One.

Samkvæmt talsmönnum Sony var gert ráð fyrir því að selja fimm milljónir eintaka af PS4 í lok mars á þessu ári en með þessu áframhaldi telja sérfræðingar að Sony eigi eftir að ná í 10 milljónir undir lok ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×