Fótbolti

Tvö vítaklúður á Emirates | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þeir Mesut Özil og David Alaba brenndu af vítaspyrnum í fyrri hálfleik Arsenal og Bayern München í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Özil átti möguleika á að koma Arsenal yfir strax á áttundu mínútu eftir að brotið var honum í teig gestanna. En slök vítaspyrna hans var auðveldlega varin af Manuel Neuer.

Undir lok hálfleiksins var svo markverði Arsenal, Wojciech Szczesny, vikið af velli eftir að hann braut á Arjen Robben. Vítaspyrna var dæmd en Alaba skaut í utanverða stöngina.

Þegar þetta er skrifað er því staðan enn markalaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×