Fótbolti

Atlético með þriggja stiga forskot á toppnum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Atlético Madrid slátraði Real Sociedad 4-0  á Vicente Calderon í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Atlético sem komst í toppsæti spænsku úrvalsdeildarinnar hefur nú ekki tapað leik síðan 19. október síðastliðinn og ætla liðsmenn Atlético greinilega að taka þátt í baráttunni um titilinn.

Atlético hefur yfirleitt verið í skugga Barcelona og nágranna sinna í Real Madrid undanfarin ár en klúbburinn hefur ekki unnið spænsku úrvalsdeildina í 18 ár.

Eftir að David Villa hafði komið Atletico yfir um miðbik fyrri hálfleiks hófu gestirnir að sækja í sig veðrið í seinni hálfleik. Eftir pressu frá Real Sociedad komu skyndilega tvö mörk frá Atletico á þriggja mínútna kafla. Diego Costa skoraði það fyrra og Miranda gerði út um leikinn með skallamarki þegar korter var eftir af leiknum.

Diego sem kom til Atletico frá Werder Bremen á lokadegi félagsskiptagluggans bætti við fjórða marki leiksins undir lok leiksins og lauk leiknum því með öruggum sigri Atletico.

Með sigrinum er Atletico taplaust í síðustu 24 leikjum og hefur unnið 18 þessara leikja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×