Fótbolti

Cavani frá næstu vikurnar

Edison Cavani
Edison Cavani Vísir/Getty
Edison Cavani, úrúgvæski landsliðsmaðurinn og leikmaður PSG í Frakklandi meiddist í 2-0 sigri PSG gegn Bordeaux á föstudaginn. Niðurstöður læknisskoðunar hafa leitt í ljós að Cavani verði frá að minnsta kosti í þrjár vikur.

Hinn 26 ára Cavani sem varð dýrasti leikmaður í sögu PSG við komu sína frá Napoli síðasta sumar fór af velli vegna meiðsla í læri. Cavani hefur skorað 20 mörk í 30 leikjum fyrir Parísarliðið sem getur reitt sig á engan annan en Zlatan Ibrahimovic í fjarveru Cavani.

Cavani mun missa af fyrri leik PSG gegn Bayer Leverkusen í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en hann ætti að ná seinni leik liðanna. Þá missir Cavani einnig af fyrri leik PSG í undanúrslitum franska bikarsins og leik nýríku liðanna þegar Monaco tekur á móti PSG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×