Fótbolti

Ronaldo í þriggja leikja bann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, var í dag dæmdur í þriggja leikja bann.
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, var í dag dæmdur í þriggja leikja bann. nordicphotos/getty
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, var í dag dæmdur í þriggja leikja bann í spænsku úrvalsdeildinni.

Ronaldo fékk rautt spjald í leik liðsins gegn Athletic Bilbao um liðna helgi. Hann fær sjálfkrafa eins leiks bann fyrir spjaldið og að auki tveggja leikja bann fyrir hegðun sína, í garð fjórða dómarans, eftir að dómarinn hafði rekið hann af velli.

Ef Real Madrid ákveður að áfrýja ekki dómnum mun leikmaðurinn missa af leikjum liðsins gegn Villareal, Getafe og Elche.

Ronaldo verður með liðinu í kvöld þegar Real Madrid mætir Atletico Madrid í undanúrslitum spænska bikarsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×