Fótbolti

Stórsigur hjá Real á nágrönnum sínum

Jese fagnar marki sínu í kvöld.
Jese fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Real Madrid er komið með annan fótinn í úrslit spænsku bikarkeppninnar eftir stórsigur, 3-0, á nágrönnum sínum í Atletico Madrid. Þetta var fyrri leikur liðanna í undanúrslitunum.

Insua varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í fyrri hálfleik og var það eina mark hálfleiksins.

Jese Rodriguez bætti öðru marki við á 57. mínútu og sjálfsmark frá Miranda á 73. mínútu kláraði leikinn.

Nú er síðan nýhafinn fyrri leikur Barcelona og Real Sociedad í undanúrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×