Fótbolti

Benzema með tvö í sigri Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Real fagna í dag.
Leikmenn Real fagna í dag. Vísir/Getty
Real Madrid komst upp fyrir Barcelona, um stundarsakir að minnsta kosti, er liðið vann 4-2 sigur á Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Real er nú með 57 stig, jafn mörg og topplið Atletico Madrid sem mætir Almeria á útivelli síðar í kvöld.

Cristiano Ronaldo tók út leikbann í kvöld og var því ekki með Real Madrid. Það kom ekki að sök þar sem að Madrídingar skoruðu fjögur mörk í kvöld.

Karim Benzema skoraði tvö mörk fyrir Real í kvöld og þeir Gareth Bale og Jese eitt hvor. Mario og Giovani Dos Santos skoruðu mörk gestanna.

Barcelona mætir Sevilla á útivelli annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×