Ná strákarnir fullu húsi í milliriðli í fyrsta sinn? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2014 17:30 Aron Pálmarsson og Björgvin Páll Gústavsson. Vísir/Daníel
Íslenska handboltalandsliðið mætir gestgjöfum Dana í lokaleik milliriðils eitt á Evrópumótinu í handbolta í kvöld og getur með sigri náð í öll stigin sem voru í boði í milliriðlinum. Landsliðið væri þá að setja nýtt íslenskt met. Íslenska handboltalandsliðið hefur aldrei unnið alla leiki sína í milliriðli á stórmóti en þetta er í fjórða sinn sem strákarnir okkar ná því að vinna tvo leiki í milliriðli. Ísland hefur unnið góða sigra á Austurríki og Makedóníu í tveimur fyrstu leikjum sínum á Evrópumótinu í Danmörku en þetta er í fyrsta sinn sem íslenska karlalandsliðið vinnur tvo fyrstu leiki sína í milliriðli. Íslenska liðið fékk 5 stig af 6 mögulegum í milliriðli á bæði EM í Svíþjóð 2002 og á EM í Austurríki 2010 en á báðum þessum mótum komst íslenska liðið í undanúrslitin. Ísland vann einnig tvo leiki í milliriðli á HM í Þýskalandi 2007 en þá voru fjórir leikir í milliriðlinum. Leikur Íslands og Danmerkur hefst klukkan 19.30 í kvöld en hann verður í beinni textalýsingu hér á Vísi sem og að Guðjón Guðmundsson lýsir leiknum beint á Bylgjunni.Flestir sigurleikir hjá Íslandi í milliriðli á stórmóti:2 - EM 2014 (2 leikir, einum ólokið) Ísland - Austurríki 33-27 Ísland - Makedónía 29-27 Ísland - Danmörk ???2 - EM 2002 (3 leikir, 1 jafntefli) Ísland - Frakkland 26-26 Ísland - Júgóslavía 34-26 Ísland - Þýskaland 29-242 - HM 2007 (4 leikir, 2 töp) Ísland - Túnis 36-30 Ísland - Pólland 33-35 Ísland - Slóvenía 32-31 Ísland - Þýskaland 28-332 - EM 2010 (3 leikir, 1 jafntefli) Ísland - Króatía 26-26 Ísland - Rússland 38-30 Ísland - Noregur 35-34
EM 2014 karla Mest lesið Eygló verður síðasti Evrópumeistarinn í sögunni Sport Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Fótbolti Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Fótbolti Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United Fótbolti Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Handbolti Fjögurra ára strákur gerði allt brjálað í höllinni Sport Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf ný hné til þess að geta gengið eðlilega Fótbolti Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Fótbolti Fleiri fréttir Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Magdeburg nálgast toppinn eftir stórsigur í Íslendingaslag Sjá meira