Nadal kláraði Federer í þremur settum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2014 11:30 Rafael Nadal fagnar hér sæti í úrslitaleiknum. Vísir/NordicPhotos/Getty
Spánverjinn Rafael Nadal er kominn í úrslitaleikinn í einliðaleik karla á opna ástralska mótinu í tennis eftir sannfærandi 3-0 sigur á Svisslendingnum Roger Federer í undanúrslitum mótsins í dag. Þetta er þriðji úrslitaleikur Nadal á opna ástralska mótinu en hann vann mótið í fyrsta og eina skiptið árið 2009. Nadal missti mikið úr á síðasta tímabili en er að koma sterkur inn á nýju ári. Rafael Nadal vann settin 7-6, 6-3 og 6-3 og ef hann spilar áfram svona í úrslitaleiknum er hann mjög sigurstranglegur í úrslitaleiknum. Fyrsta settið var mjög jafnt en Nadal marði sigur þar og kláraði síðan tvö síðustu settin nokkuð sannfærandi. „Þetta var mín besta spilamennska á mótinu," sagði Rafael Nadal eftir leikinn. Roger Federer, sem var búinn að slá út kappa eins og Andy Murray og Jo-Wilfried Tsonga á mótinu, tókst ekki að komast í 25. úrslitaleikinn sinn á risamóti. Rafael Nadal á möguleika á að vinna sitt fjórtánda risamót þegar hann mætir Stanislas Wawrinka í úrslitaleiknum. Þetta verður aftur á móti fyrsti úrslitaleikur Wawrinka sem sló meðal annars út Novak Djokovic. Nadal hefur unnið alla tólf innbyrðisleiki þeirra.
Tennis Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Fleiri fréttir „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Dagskráin í dag: Það er pílan Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Cullen stormaði út af blaðamannafundi White og Littler mætast í 16-manna úrslitum Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Martin og félagar burstuðu botnslaginn Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Sektaður fyrir að vera í sitthvorum skónum Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Sjá meira