Fótbolti

Real Madrid í toppsætið í bili

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ronaldo fagnar marki í dag.
Ronaldo fagnar marki í dag. Vísir/AFP
Cristiano Ronaldo og Karim Benzema voru á skotskónum þegar Real Madrid vann 2-0 heimasigur á Granada í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Real Madrid réð gangi leiksins frá fyrstu mínútu þótt Granada hafi á tíðum gerst aðgangsharðir við mark heimamanna. Baráttan skilaði því að markalaust var í hálfleik.

Stuðningsmenn Real mynduðu stafina CR7 í stúkunni fyrir leik til heiðurs Portúgalanum Cristiano Ronaldo og sá þakkaði fyrir sig með marki á 56. mínútu. Benzema bætti við marki á 74. mínútu eftir frábæran undirbúning Marcelo og sigurinn í höfn.

Leikmenn Real fengu fjölmörg færi til að bæta við mörkum en voru kærulausir í aðgerðum sínum. Sigurinn setur liðið þó í efst sætið með tveggja stiga forskot á Barcelona og Atletico Madrid. Bæði lið eiga leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×