Fótbolti

Fer fyrir Bale eins og Woodgate?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gareth Bale gengur af velli eftir að hafa meiðst í leik með Real Madrid.
Gareth Bale gengur af velli eftir að hafa meiðst í leik með Real Madrid. Vísir/Getty
Spænska pressan er strax byrjuð að líkja meiðslasögu Gareth Bale hjá Real Madrid við ófarir Jonathan Woodgate hjá félaginu á sínum tíma.

Woodgate var keyptur til Real Madrid árið 2004 fyrir rúmar þrettán milljónir punda en náði aðeins að spila í fjórtán leikjum með liðinu áður en hann fór aftur tveimur árum síðar.

Staða Bale er vitaskuld ekki svo alvarleg en engu að síður hefur hann átt í erfiðleikum með að halda sér heilum eftir að hann kom frá Tottenham fyrir meira en 100 milljónir evra í sumar.

Nú síðast fór Bale af velli í hálfleik í 2-0 sigri Real Madrid á Granada um helgina eftir að hann fékk spark í nárann. Enn er óvíst hvort að meiðsli Bale séu alvarleg en hann gat ekki æft eftir leikinn og verður ekki með í bikarleiknum gegn Espanyol í kvöld.

Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, reyndi að gera lítið úr meiðslunum við spænsku pressuna en vildi þó ekki greina nánar frá þeim. Það er ekki í fyrsta sinn sem hann talar á þeim nótum en eftir að Bale meiddist á æfingu í desember var hann frá í þrjár vikur - þrátt fyrir að meiðslin hafi verið „smávægileg“.

Bale hefur komið við sögu í 22 leikjum Real Madrid á tímabilinu til þessa. Þar af hefur hann spilað allar 90 mínúturnar í níu þeirra.

Óttast er að tíð meiðsli Bale megi rekja til alvarlegri bakmeiðsla og að það sé aðeins tímaspursmál hvenær hann þurfi að leggjast undir hnífinn. Spænska blaðið AS fjallar um málið í dag og fullyrðir að sumir í læknaliði Real Madrid sjái ýmsar hliðstæður í meiðslum Bale og Woodgate.


Tengdar fréttir

Cristiano Ronaldo finnur til með Bale

Cristiano Ronaldo biðlar til fólks að minnka pressuna á Gareth Bale sem Real Madrid keypti fyrir 85 milljónir punda frá Tottenham í haust.

Real Madrid neitar því að Bale sé með brjósklos

Real Madrid segir ekkert til í frétt Marca í morgun um að Gareth Bale sé kominn með brjósklos en velski vængmaðurinn hefur ekki spilað mikið með spænska stórliðinu síðan að Real Madrid gerði hann að dýrasta knattspyrnumanni heims.

Gareth Bale: Ég get spilað enn betur

Gareth Bale fór á kostum um helgina í forföllum Cristiano Ronaldo en hann skoraði þrennu og gaf stoðsendingu í 4-0 sigri Real Madrid á Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni. Bale ætlar sér að bæta sig enn frekar hjá Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×