Fótbolti

Real Madrid komið í undanúrslit bikarsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jesé fagnar hér sigurmarki sínu.
Jesé fagnar hér sigurmarki sínu. Vísir/NordicPhotos/Getty
Real Madrid vann 1-0 heimasigur á Espanyol í kvöld í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum spænska konungsbikarsins í fótbolta.

Real Madrid varð þar með fyrsta liðið til þess að komast í undanúrslit keppninnar því Real-menn unnu einnig 1-0 sigur í fyrri leiknum í síðustu viku.

Hinn tvítugi Jesé skoraði eina mark leiksins í kvöld strax á 7. mínútu eftir sendingu Xabi Alonso. Karim Benzema skoraði sigurmarkið í fyrri leiknum.

Cristiano Ronaldo spilaði allan leikinn en komst ekki á blað fyrir utan það að fá gula spjaldið í seinni hálfleik.

Hann skoraði heldur ekki á 90 mínútum í fyrri leiknum sem þykir fréttnæmt í dag enda kappinn búinn að vera frábær á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×